Limoncello Martini

Fyrir James Bond aðdándann sem finnst gin ekki gott, þá er hér á ferð útgáfa af Martini kokteilnum sem er þónokkuð öðruvísi. Þetta gæti farið úr böndunum…. James Böndunum.



Hráefni

  • 60ml Limoncello Atlantico

  • 30ml Vodka

  • 60ml rjómi

  • 1 msk þeyttur rjómi

  • Hafrakex

  • Sítrónusneiðar

Aðferð

  1. Makið smá limoncello á glasabarminn og dýfið svo glasinu á disk með hafrakexi

  2. Setjið klaka í kokteilhristara ásamt Limoncello, vodka, rjóma og þeyttum rjóma

  3. Hristið MJÖG VEL í a.m.k. 20 sekúndur

  4. Sigtið innihaldið yfir í glasið

  5. Skreytið með sítrónusneið

Previous
Previous

Sumar kokteillinn

Next
Next

Sítrus terta fyrir helgina