Íspinnar fyrir fullorðna

Ómægod þessir eru svo skemmtilegir. Íspinnar með Limocello fyrir fullorðna. Frábærir í garðveisluna, sem dessert eftir góðan grillmat, nú eða bara til að njóta fyrir framan sjónvarpið.



Hráefni

  • 2 bollar rjómi

  • 1/2 bolli hrásykur

  • Sjávarsalt

  • 1/4 bolli Limoncello Atlantico

  • Fínt rifinn börkur af tveimur sítrónum

  • Safi úr tveimur sítrónum

Aðferð

  1. Blandið saman rjóma, sykur og klípu af salti í pott á meðalhita í um 5 mínútur

  2. Takið pottinn af hellunni og látið kólna í um 10 mínútur

  3. Bætið við Limoncello, sítrónusafa og sítrónubörk, hrærið vel og hellið í íspinnamót

  4. Geymið pinnana í frystinum í um 10-24 tíma áður en þeir eru bornir fram

Previous
Previous

Sítrus terta fyrir helgina

Next
Next

Tiramisu með öðru sniði