Blaut Limoncello kaka

Gefðu þér nægan tíma fyrir þessa. Trúðu mér, það mun borga sig. Hún er alveg frábær!



Hráefni

  • Fyrir kökuna

  • 200gr mjúkt smjör

  • 200gr sykur

  • 4 egg

  • 150gr möndlumjöl

  • 50gr hveiti

  • 4 msk Limoncello Atlantico

  • Börkur af 2 sítrónum

  • 1 tsk lyftiduft

Fyrir sýrópið

  • Safi úr 2 sítrónum

  • 50gr sykur

  • 60ml Limoncello Atlantico

Fyrir toppinn

  • Safi úr 1 sítrónu

  • 60gr sykur

Aðferð

  1. Hitaðu ofninn í 160°C með blæstri

  2. Þeyttu saman smjör og sykur í um 8-10 mínútur eða þangað til það er orðið silkimjúkt

  3. Þeyttu egg í annarri skál og bættu þeim svo rólega við smjörblönduna

  4. Taktu nú fram sleifina og hrærðu hveitinu, möndlumjölinu, sítrónubörknum, Limoncello-inu og lyftiduftinu varlega saman við

  5. Helltu deiginu yfir í bökunarmót sem búið er að smyrja og klæða að innan með smjörpappír (mjög mikilvægt að sleppa ekki smjörpappírnum)

  6. Bakaðu í um 40-45 mínútur og láttu kökuna svo kólna í bökunarmótinu. Mikilvægt að láta kökuna kólna vel

  7. Settu öll sýrópshráefnin í lítinn pott á lágum hita, og leyfði sykrinum að bráðna rólega

  8. Notaðu svo gaffal eða grillpinna til að stinga göt í kökuna og hellið svo sýrópinu varlega yfir. Kælið aftur í hálftíma

  9. Blandaðu saman sítrónusafa of sykri og smyrðu því yfir kökuna

  10. Láttu þetta allt kólna í bökunarforminu sjálfu. Þessa á ekki að bera fram heita, gefðu henni nægan tíma til að kólna

  11. Takið úr forminu, skerið í sneiðar og berið fram

Previous
Previous

Tiramisu með öðru sniði

Next
Next

Limoncello Spritz